Það mætti stór og góður hópur á Café Flóru í gær. Adda,
Guðrún Vald, Hrefna (alla leið frá Stykkishólmi), Hrund, Harpa Ýr,
Ásdís María, Barbara Ösp, Bergur Pétur (alla leið austur úr sveit),
Helgi Bjarni, Arnaldur, Bryndís Ernsts. Við sátum inni, fengu
okkur léttar vetingar, skoðuðum myndir úr ÍR-skála ferð, ræddum um
liðnar stundir, kynntumst nýjum litlum ÍR-ingum og mökum, spáðum í
líðandi stund og skemmtum okkur bara mjög vel.
Svo er bara málið að halda sambandinu lifandi á e.n hátt.
Til að byrja með má nota þetta blogg svæði. Kannski setjum
við upp spes-blogg fyrir þetta. Það var rætt um að í
framtíðinni verði haldinn barnalaus fjörendurfundur. Ég reyni
að setja myndir inn á svæðið eða tengil þar sem hægt er að sjá
myndirnar. Kannski ég grafi upp e.ð gamalt efni, jafnvel
gömul prógröm...
Takk fyrir að mæta - það er frábært að sjá að öll eru meika það
fínt, með nóg af spennandi hlutum í framtíðinni.